Flotayfirsýn sem styður ákvarðanir
Sjáðu rekstrarstöðu, staðsetningu, sögu, tekjur og opin verkefni hvers ökutækis.
Flotastýring fyrir bílaleigur
Fleetrion sameinar ökutæki, leigusamninga, tekjur, kostnað, tjón og viðgerðir í einni lifandi yfirsýn. Sjáðu hvað er í útleigu, hvað er frá vegna viðgerða og hvar reksturinn tapar eða skapar verðmæti.

Einn staður fyrir flotann
Leigusamningar, tekjur, tjón, verkstæðisvinna og kostnaður segja saman söguna um flotann. Fleetrion tengir gögnin við rétt ökutæki svo stjórnendur sjái stöðuna og geti brugðist fyrr við.
Sjáðu rekstrarstöðu, staðsetningu, sögu, tekjur og opin verkefni hvers ökutækis.
Berðu saman leigutekjur, tryggingatekjur, tjónakostnað og niðritíma niður á einstaka bíla.
Myndir, ábyrgðarmat, verkstæði, rukkun og lokaniðurstaða fylgja bílnum í einum ferli.
Frá gögnum til ákvörðunar
Ökutæki, leigusamningar, tekjur og tryggingar.
Tjón, niðritími, kostnaður og verkefni sem bíða.
Ábyrgð, rukkun, viðgerðir og eftirfylgni.
Aftur í útleigu, áfram úr flota eða frekari aðgerð.
Rekstraryfirsýn
Fleetrion tengir leigutekjur og tryggingatekjur við kostnað, tjón og tapaðar tekjur. Þannig verður auðveldara að forgangsraða viðgerðum, finna dýran niðritíma og meta hvaða bílar eiga heima áfram í flotanum.
Aðgangsstýring tryggir að hver notandi geti aðeins séð og breytt því sem tilheyrir hans starfi og fyrirtæki.
eftir ökutæki
og tapaðar tekjur
frá leigutaka eða tryggingum
Byrjum samtalið
Segðu okkur hvernig þið haldið utan um ökutæki, tekjur, kostnað, tjón og viðgerðir í dag. Við metum hvar Fleetrion getur sameinað gögnin og stutt betri rekstrarákvarðanir.